Microsoft endursöluaðili Reikningar í krónum Íslensk þjónusta

Microsoft 365 fyrir fyrirtæki

Tölvupóstur, Teams, Office og öryggi, sett upp rétt frá byrjun. Fixly selur Microsoft leyfi á Íslandi í gegnum Arrow, sér um uppsetninguna og flytur gögnin. Þú færð einn reikning í krónum og einn aðila til að hringja í.

Frá 980 kr.á notanda á mánuði
0 kr.að flytja leyfin til okkar
Frí uppsetningfyrir 5+ notendur á ársbindingu
Engin kortmánaðarlegur reikningur í bókhaldið

Leyfi og verð

Verð á notanda á mánuði. Blandaðu leiðum eins og hentar, t.d. Premium fyrir stjórnendur og Basic fyrir aðra.

Business Basic

Tölvupóstur, Teams og skýið. Office í vafra og síma.

980 kr.á notanda / mán. án vsk
  • Tölvupóstur á eigin léni (50 GB)
  • Teams fundir, spjall og símtöl
  • 1 TB OneDrive á notanda
  • Word, Excel og PowerPoint í vafra og síma
  • SharePoint sameiginleg drif
Velja Business Basic
Vinsælast

Business Standard

Allt í Basic auk Office forritanna í tölvuna.

1.980 kr.á notanda / mán. án vsk
  • Allt sem er í Business Basic
  • Word, Excel, PowerPoint og Outlook í tölvu (Windows og Mac)
  • Uppsett á allt að 5 tölvur og 5 síma á notanda
  • Bookings tímabókanir og vefnámskeið
  • Clipchamp, Loop og Planner
Velja Business Standard

Business Premium

Allt í Standard auk öflugrar öryggisvarnar og tækjastýringar.

3.080 kr.á notanda / mán. án vsk
  • Allt sem er í Business Standard
  • Defender for Business vírus- og árásarvörn
  • Intune tækjastýring fyrir tölvur og síma
  • Entra ID P1 og skilyrtur aðgangur (Conditional Access)
  • Purview gagnavernd og merkingar á skjölum
Velja Business Premium
Exchange Online (Plan 1)Eingöngu tölvupóstur og dagatal, 50 GB pósthólf.
499 kr./ notanda / mán.
Microsoft 365 Apps for businessOffice forritin í tölvu og 1 TB OneDrive, án tölvupósts.
1.690 kr./ notanda / mán.
Copilot, Visio, Project, Power BI, Azure og fleiraVið útvegum öll Microsoft leyfi á CSP verði. Sendu okkur hvað þig vantar.

Stærri fyrirtæki og framlínustarfsfólk

Enterprise leiðir fyrir fleiri en 300 notendur eða þegar þarf meiri stýringu, öryggi og regluvörslu, og Frontline leiðir fyrir starfsfólk í verslun, framleiðslu og umönnun.

Microsoft 365 E3Fyrir 300+ notendur eða meiri stýringu: Office forritin, Intune, Entra ID P1, Windows Enterprise og 100 GB pósthólf.Án Teams: 4.790 kr.
5.990 kr./ notanda / mán.
Microsoft 365 E5Allt í E3 auk Defender XDR, Entra ID P2, Purview regluvörslu, Power BI Pro og símkerfis í Teams.Án Teams: 8.090 kr.
9.290 kr./ notanda / mán.
Microsoft 365 F3Framlínustarfsfólk: Teams, Office í vafra og síma, 2 GB pósthólf og Intune tækjastýring.
1.390 kr./ notanda / mán.
Microsoft 365 F1, Office 365 E1, E3 og E5Allar Enterprise og Frontline leiðir fást, líka án Teams og með Teams Enterprise sér.

Verð án vsk nema annað sé valið. Ársbinding greiðist mánaðarlega. Án bindingar má fækka leyfum hvenær sem er en Microsoft leggur þá 20% ofan á verðið. Verð geta breyst með verðskrá Microsoft og gengi.

Hvað kostar þetta fyrir okkur?

Settu inn fjölda notenda á hverja leið.

Á mánuði án vsk 0 kr.
Notendur
0
Á ári
0 kr.
Binding
Ársbinding
Uppsetning
24.900 kr.
Fá tilboð í þetta

Uppsetning er frí fyrir 5 eða fleiri notendur á ársbindingu.

Þjónustupakkar Fixly

Leyfin ein og sér gera lítið gagn ef þau eru illa sett upp. Föst verð, engin tímamæling og þú veist kostnaðinn fyrirfram.

Uppsetning

24.900 kr. eingreiðsla
  • Microsoft 365 umhverfi stofnað og lénið tengt
  • DNS: MX, SPF, DKIM og DMARC svo póstur lendi ekki í rusli
  • Notendur, hópnetföng og tvíþátta auðkenning (MFA)
  • Outlook og Teams á tölvur og síma, stutt kennsla

Frítt fyrir 5+ notendur á ársbindingu.

Flutningur tölvupósts

4.900 kr. á pósthólf
  • Frá Gmail, Google Workspace, cPanel/IMAP eða eldra Exchange
  • Póstur, dagatöl og tengiliðir fylgja með
  • Skipt um í einu lagi utan vinnutíma, enginn póstur tapast

Teams og skjöl

34.900 kr. eingreiðsla
  • Teymi, rásir og sameiginleg drif sett upp eftir ykkar skipulagi
  • Gögn flutt úr Dropbox, Google Drive eða af netþjóni (allt að 100 GB)
  • Aðgangsréttindi og deiling út fyrir fyrirtækið

Öryggispakki

49.900 kr. eingreiðsla
  • Fyrir Business Premium: Intune, Defender og Conditional Access
  • BitLocker dulkóðun og stefnur fyrir tölvur og síma (allt að 10 tæki)
  • Lokað á innskráningar frá áhættusömum stöðum og gömlum aðferðum

Allar netlausnir á einum stað

Fixly sér um allt sem fyrirtækið þarf á netinu, svo þú þurfir ekki að tala við fimm aðila.

Af hverju að kaupa Microsoft 365 hjá Fixly?

Lægra verðVið verðleggjum leyfin í lægri kantinum og bætum engu falið ofan á.
Reikningur í krónumEinn mánaðarlegur reikningur í bókhaldið, ekkert kreditkort og ekkert gengisflökt á kortinu.
Ókeypis flutningurLeyfin færast til okkar án truflunar á pósti, skjölum eða Teams.
Í gegnum ArrowLeyfin koma frá Microsoft í gegnum Arrow, einn stærsta dreifingaraðila Microsoft í Evrópu.

Svona gengur þetta fyrir sig

  • Spjall: við förum yfir hvað þið notið í dag og hvaða leið hentar hverjum og einum.
  • Tilboð: skýrt verð á leyfum og uppsetningu, engar óvæntar viðbætur.
  • Uppsetning: við setjum upp, flytjum póst og gögn og skiptum yfir utan vinnutíma.
  • Eftirfylgni: þið fáið aðstoð ef eitthvað kemur upp og við bætum við notendum þegar þarf.

Algengar spurningar um Microsoft 365

Hvaða leið hentar mér?

Business Basic dugar ef fólk vinnur aðallega í tölvupósti, Teams og vafra. Business Standard hentar flestum fyrirtækjum því þar fylgja Office forritin í tölvuna. Business Premium er fyrir þá sem vilja tækjastýringu og öryggisvarnir, t.d. vegna persónuverndar eða fjarvinnu.

Get ég flutt leyfin mín til Fixly?

Já. Leyfin færast á milli söluaðila án þess að tölvupóstur, skjöl eða Teams verði fyrir truflun. Flutningurinn kostar ekkert og nýr samningur tekur við þegar núverandi binding rennur út.

Seljið þið E3, E5 og F3?

Já. Business leiðirnar eru fyrir allt að 300 notendur. Stærri fyrirtæki, eða þau sem þurfa meiri stýringu og regluvörslu, velja E3 eða E5, og F3 hentar framlínustarfsfólki sem deilir tölvum eða vinnur mest í síma. E3 og E5 fást líka án Teams ef þið notið annað fundakerfi.

Hver er munurinn á ársbindingu og mánaðarbindingu?

Með ársbindingu er verðið lægra og greitt mánaðarlega, en ekki er hægt að fækka leyfum fyrr en við endurnýjun. Án bindingar má fækka leyfum hvenær sem er en Microsoft leggur 20% ofan á verðið. Alltaf má bæta við leyfum.

Þarf ég kreditkort?

Nei. Við sendum reikning í íslenskum krónum mánaðarlega og hann fer beint í bókhaldið eins og aðrir reikningar.

Má blanda leiðum?

Já. Algengt er að stjórnendur og fartölvunotendur séu á Premium eða Standard og aðrir á Basic eða Exchange Online. Allt er á sama reikningi og endurnýjast á sama degi.

Viltu lægri Microsoft reikning?

Sendu okkur fjölda notenda og hvaða leyfi þið eruð með í dag. Við svörum með verði og tillögu, yfirleitt samdægurs.

Microsoft, Microsoft 365, Teams, Outlook, Exchange, Intune og Defender eru vörumerki Microsoft Corporation.